Ég bý til framúrskarandi hugmyndir og texta fyrir félög sem vilja tala skýrt, tengjast fólki og skera sig úr fjöldanum.
Ég er verðlaunaður listamaður og hef víðtæka reynslu af skapandi vinnu fyrir vörumerki í landinu. Hvort sem verkefnið snýr að auglýsingum, almannatengslum, myndbandsgerð, mörkun, nafnavinnu eða skæruliðahernaði þá get ég orðið að liði.
Ég bý svo vel að þekkja hæfileikaríkt fólk í gegnum
árangursríkt samstarf. Réttur aðili gæti orðið að liði við næsta verkefni.
Ég er íslenskuunnandi með reynslu af gerð auglýsinga, vefsíðutexta, skýrslutexta, færslutexta, frétta, leikhandrita, tónlistar, og þýðinga. Ég legg metnað í að skrifa fyrsta flokks texta sem er skýr, skiljanlegur og í réttum anda.